14.9.12

Eftirvænting tilhlökkun og gleði

Eftir 6 daga koma gömlu bestu í heimsókn til mín hingað til Noregs. Þrjár þeirra hafa komið áður en tvær aldrei áður. Vona að Noregur skarti sínu fegursta en það er því miður svoleiðis með veðrið í þessu landi að maður getur aldrei treyst á það. Skil eiginlega ekki afhverju ég ekki bý í Florida eða á öðrum heitum stað. En svona er lífið. Allavegna þá verður gaman að fá þær hingað. Ef það er eitt sem ég get treyst á í þessum heimi þá er það að það er alltaf gaman með þessum stelpukonum. Þær eru bara svoooo skemmtilegar og létt bilaðar eins og vinkonur eiga að vera. Hvernig væri lífið ef maður ætti leiðinlegar vinkonur. Get ekki einu sinni hugsað mér hversu dapur það væri. Nei ég er bara svo fegin að eiga vinkonur sem ég hef þekkt síðan ég var í barnaskóla. Og að þær séu skemmtilegar í þokkabót. Skál fyrir þeim Önnu,Beggu,Ellu,Guggu og Hönnu Siggu.

Var að koma af 3. daga námskeiði í HTML5 og CSS3. Frekar tóm í hausnum eftir þessa daga, ekki lengur vön að forrita svo mikið svo að heilasellurnar fengu algjört áfall yfir því að þurfa að hugsa svona mikið. Ætla að reyna að hugsa sem minnst næstu daga og slaka á. Húsbandið á rjúpu. Hef nú ekki miklar væntingar að fá rjúpu eftir þá ferð því það hefur víst lítið sést til hennar í haust, en hann fór nú samt.

Hvað á betur við núna en ekta girlpower frá liðnum tíma.



Gleðilega helgi

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En gaman, skemmtid ykkur vel saman :)
//Ellen

Nafnlaus sagði...

" Haltu í kött" hvað ég er orðin spennt, Þetta verður svooooo gaman að ég er byrjuð að æfa vöðvana í andlitinu svo ekki komi ótímabær krampi.
Hlakka til að hitta þig Helga mín.

kv Guðbjörg

Nafnlaus sagði...

Hitti mömmu þína í dag, öfunda hana smá með kærri frá okkur Bróa.

Íris sagði...

Viss um að það hefur verið mikið hlegið og fíflast og dagarnir hafa liðið allt of fljótt. Best í heimi að eiga skemmtilegar stelpuvinkonur