28.11.06

November rain


Náði í Sögu í dag í skólan og þar var mér tilkynnt að hún og Ída sem einnig er með Downs heilkenni höfðu stungið af úr skólanum í morgun. Kennarinn þeirra hafi skotist inn í aðalbyggingu skólans að ná í lykla og þegar hún kom aftur út 2 mín seinna voru þær stöllur horfnar. Þetta var nátturulega algjört sjokk fyrir hana því ekki vissi hún hvar hún ætti að byrja að leita. Eftir þó nokkra leit fundust þær stöllur langt fyrir utan skólalóðina, í göngum undir stórri aðalgötu.Ég er nú eiginlega hissa að þetta ekki hafi gerst fyrr en vona að þetta hafi sett smá spor í fólk í skólanum svo að það passi hana betur. Maður er aldrei alveg öruggur með hana því hún framkvæmir á þess að hugsa og getur heldur ekki útskýrt á eftir hvað hún var að hugsa!!!

Fyrir utan þessa leiðinlegu og stressandi lífsreynslu hefur þessi mánuuður verið með rólegasta móti, búið að rigna alveg heilan helling og ekkert farið að snjóa neitt. Baltasar finnst það alveg ægilega leiðinlegt því hann vill fara að nota skíðin sín. Ég aftur á móti er ekkert óhress með smá bleytu svo lengi sem hún ekki frýs.

Annars bara að komast í þetta ljómandi jólaskap. Tók smá forskot á sæluna á sunnudaginn og kveikti á fyrsta aðventukertinu !! Maður er nú svo kýrskýr stundum.

Að lokum vill ég tilkynna að ég er búin að koma á laggirnar smá leik hér á blogginu þar sem ég ætla að nota lagatitla sem titil á blogg mánaðarins. Ef þú veist hver flutti lag með þessum titli endilega skrifaðu smá "komment" um það. Svona er ég nú sniðug að finna upp á leikjum sem hægt er að spila saman á milli landa!! Gaman!Gaman!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ja er það ekki Guns n Roses. Svona er maður skýr. Gott að vera búin að sjá bloggið. Svona ertu nú dugleg. Annað en ég ,,hugsa um þetta í hvert skipti þegar fólk bloggar. En ekkert gerist... OG...góður leikur

Nafnlaus sagði...

Ekki alveg klár á þessu, en ég man eftir Borði þér orma frú norma var það ekki Ný dönsk eða?? ég er nú ekki sú besta í þessu.
En ég get rétt ímyndað mér óþæginlega lífsreynslu þetta. En til allra guðslukku þá fundust þær fljótt og heilar.
Bestu kveðjur

Nafnlaus sagði...

Jólakveðja frá Florida !