28.1.07

það var í næturlestinni í Kairó...




að maður hefði alveg getað fengið þennan góða kjúkling sem ég eldaði á föstudaginn. Stundum er ég alveg hlessa yfir hvað ég ramba á góðar uppskriftir.Allavegna þá vill ég endilega deila þessum ljómandi góða kjúlla með ykkur hinum.

Marókanskur kjúklingur með tómötum og safranmarmelaði.


F.4 :: Tími 65 mín

1 kjúklingur
1 laukur hakkaður grófð
3 hökkuð hvítlauksrif
1 tsk saffran
2 msk sjóðandi vatn/eða bara mjög heitt
2 tsk malaður kanil
2 tsk malað engifer
4-6 tómtatar í grófum bitum
3 dl kjúklingakraftur
3- 4 msk fljótandi hunang(verður að vera fljótandi sortin)
100 gr ristaður möndluspænir
ferskt koríander ef maður vill

kjúkl bitaður, saltað og piprað og steikt á pönnu þar til hann er brúnaður á öllum hliðum. Tekin af og laukur og hvítlaukur mýktur á pönnunni. Safran blandað með vatni látið standa smá stund. Þurrkryddinu bætt við laukinn og blandað vel saman, tómötum og saffran bætt út í. Látið sjóða saman í 5 min. Kjúklingnum bætt ut í og kjuklingakraftinum bætt út í, látið malla í 30 mín. Kjúlli tekin af og hækkað á pönnunni. Safinn látin sjóða niður þar til hann er hæfilega þykkur,hunangi bætt út í og soðið þar til það minnir á marmelaði(ekki samt alveg eins þykkt). Kjúlli settur aftur útí og hitaður. Möndluspæni dreyft yfir áður en borið er fram með grjónum og góðu salati.

Gugga til hamingju með sigurinn í síðustu getraun!! Gott að þú vissir hver flutti þetta lag því ég gerði það ekki :-)

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jájá, það er Arabadrengurinn sem hún Björk "okkar" syngur um í þessu lagi frá 1977. Munum vel eftir þessu :-) enda nýorðin 1. árs og tveggja þegar það kom út!!
Prufum uppskriftina um leið og tækifæri gefst..
Í & Ó

Nafnlaus sagði...

Sæl vertu Helga Dís.
Rakst á síðuna þína í gegnum síðuna hennar Önnu Boggu. Vildi bara kvitta fyrir mig. Bý líka í Noregi ;o) er í námi við UMB í Ås.
Kveðja Oddný Guðmundsdóttir Hornfirðingur

Nafnlaus sagði...

hæ Helga mín. ´snorri rakst á svo margar girnilegar uppskriftir inn á síðunni þinni. Hann vill endilega að við prufum maríkóska kjúllan, sem hljómar mjög spennandi. kv. Anna

Nafnlaus sagði...

hæ Helga mín. ´snorri rakst á svo margar girnilegar uppskriftir inn á síðunni þinni. Hann vill endilega að við prufum maríkóska kjúllan, sem hljómar mjög spennandi. kv. Anna

Nafnlaus sagði...

Þekkti lagið líka! Fannst það ægilega flott á sínum tíma.
Ertu búsett í Osló eða annarsstaðar í Norge?
Kv. Álfheiður