2.7.09

LOKSINS !!

Vá hvað síðustu vikurnar fyrir sumarfrí eru lengi að líða. Þessi bið er verri en jólabiðin. Og sérstaklega núna í miðjarðarhafsveðri. Búið að vera milli 26-30 gráður í að nálgast 2 vikur og maður komin í þokkalegt sumarfrísskap. Því miður er spáin ekkert sérsök fyrir DK næstu vikuna en ég keypti mér stígvéli í gær svona til að ég og veðrið pössum saman. Eldrauð. Jamm, maður er orðin svo glannalegur á efri árum. Og feit! Bikinísísonginu er aflýst í ár. Prófa aftur næsta ár.

Ákvað að skella inn nokkrum myndum af vatna verkinu sem húsbandið bjó til all by him self.



Síðasta lag fyrir frí er mjög svo ekki ég en finnst það samt kúl og minnir mig á það sem maður var að gera fyrir rúmum 10 árum á heitum föstudagskvöldum. Nefninlega dansa og djamma í hitanum. Núna læt ég mér nægja hvítvínsglas og grill í garðinum og hlusta á börnin mín rífast. Ekkert meira föstudagslegt en það. Að vísu er fimmtudagskvöld núna en á morgun verð ég á fjölskyldubingó á danska bátnum. Íha!



Sjáumst kannski á Íslandi eftir 2 vikur !

6 ummæli:

ellen sagði...

Duglegur madurinn thinn...
já og thetta med bikiníid... "överskattat"

Vid sjáumst kanski á Ìslandinu góda, vid förum frá Köben 21/7, nokkra daga í Rvík og svo á Höfn fyrstu helgina :)

Íris Gíslad sagði...

flott vatnalistaverk

Nafnlaus sagði...

Listrænt húsband sem þú náðir þér í Helga mín, glæsilegt Fengsui vatnaverk hjá honum! Fæ vonandi að sjá þetta a live þegar ég heimsæki þig næst...:)
Knús Berglind
Ps.vonandi hefurðu tíma til að hitta mann þegar þú mætir á fróna

Nafnlaus sagði...

já vá rosa flott - og líka með smáatriðin á hreinu, hlökkum til að hitta ykkur á íslandi kv, Ella

Nafnlaus sagði...

Halló halló ég ætlaði að bara að kíkja á þig en það er orðið annsi langt síðan þú skrifaðir síðast. kv. Anna

ellen sagði...

vid sáumst ekkert á Höfn... en fer ekki sumarfríid ad vera búid?