18.12.09

Bráðum koma blessuð jólin

og börnin farin að hlakka til og ég líka. Baltasar fann bækling sem heitir Gadget Bibelen og í honum var óskalisti þar sem hægt er að lista upp 22 hluti sem maður óskar sér í jólagjöf. Við hjónin hljóum okkur máttlaus þegar við lásum listann hans og hér er smá samantekt yfir það sem drengurinn óskar sér.

nr 1.

Sturtu"munnstykke" sem mælir hitastigið og sýnir með ljósi hvaða hiti er á vatninu (skil ekki að við höfum ekki reddað okkur svona fyrr).

nr.2

Serpentin spray - say no more!


nr.3
Ice Invaders - hægt að búa til klaka sem eru í laginu eins og gamla tölvuspilið sem var alltaf á Shell hér í den.

nr. 4

Tómatsósu og Sinnepsvopn. Skil það nú ekki því hann borðar hvorugt.

nr.5

Klósettljós. Praktískur getur hann líka verið þessi elska.


nr.6
Upplásinn ölkrús. Vill minna á að hann er að aðeins 8 ára og þetta veldur mér þó nokkrum áhyggjum.


nr.8.

Sprengju hátalarar. Mjög svo skiljanlegt, maður getur aldrei haft of hátt heima hjá sér.


nr.8

Þarfnast engra útskýringa ég meina hvaða 8 ára strák þætti ekki æði grilla pulsu með þessu tæki!

Það var fullt meira á þessum lista og allt alveg jafn brúklegt. Við ætlum að athuga hvort við fáum ekki eitthvað af þessum lista sem hann svo fær frá jólasveininum. Verður samt ekki uppblásna ölkrúsin eða grillpinninn. Þegar ég spurði Sögu hvað hún vildi um jólin svaraði hún "jólamat" svo að ég verð víst að vera aðeins nákvæmari næst þegar ég spyr. En jólamat fær hún þessi elska.

Annað um Baltasar. Hann er frekar upptekin af hvernig hann lítur út og fylgist náið með hvernig stóru strákarnir klæða sig og apar svo eftir og einn morguninn sagði hann allt í einu að hann óskaði sér vetrargalla, svona heilgalla. Þar sem hann á bæði skíðaúlpu og buxur og eitt sett auka fór ég nú ekki að eltast við þessa ósk hans og kaupa alveg nýjan galla svo að ég skellti mér í búð hér í nágrenninu sem selur notuð föt. Hef oft keypt regnföt þar þegar krakkarnir voru í leikskóla og þurftu að eiga tvennt af öllu. Allavegna, þá fann ég þennan forláta heilgalla, skær gulan með svörtu á ermunum og ákvað að taka sjensinn. Keypti gallan og varð minn maður bara svona rosalega ánægður með gallann. Hugsaði með mér ef einhver kemst upp með að ganga í svona galla og vera kúl í honum þá er það sonur minn því honum er nokk sama hvað fólki finnst um hann og ber höfuðið hátt þegar hann er öðruvísi en allir hinir. Bekkjafélagarnir eiga trúlega eftir að halda að þetta sé nýasta tíska þegar Baltasar verður búin að sýna þeim gallann og eitt er víst að ég á alltaf eftir að vita hvar sonur minn er þegar hann er klæddur þessari flík.

Annars bara fínt. Byrjuð í sjúkraþjálfun með bakið á mér og vona að það fari að hjálpa. Er búin að senda öll jólakort og kaupa gjafirnar og ætla að hella mér í konfektgerð um helgina. Búin að baka 3 sortir og læt mömmu baka eina þegar hún kemur en hún er betri bakari í þeirri sortinni. Semsagt er tilbúin fyrir jólin.

Þetta verður síðasta blogg fyrir jól og vill ég bara á endanum óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi bloggári. Verð að vinna milli jóla og nýárs og blogga trúlega smá svona til að segja ykkur leyndarmálið.

Lag vikunar er íslenskt jólalag með afburðar góðu myndbandi. Hef bara sjaldan séð eins flottar tæknibrellur og vildi deila því með ykkur, því maður á að deila með öðrum um jólin. Og svo verða allir að syngja með Bo og Ruth! Og getur einhver sagt mér hvern þetta barn er að hitta við þetta fangelsi. Gera börn svona?



Góða helgi og allt það.

5 ummæli:

ellen sagði...

ha ha ha ha er baedi ad hlaegja ad grillpinnanum já og svo hárgreidslunni hans Bjögga!

Gledileg jól til ykkar í Norge og hafid thad sem allra best!

Nafnlaus sagði...

Við Brói sendum þér og þínum innilegustu jólakveðju. Hlakka til að lesa næsta blogg með kærri kveðju í bæinn þinn.

Ameríkufari segir fréttir sagði...

Hahahaha-hann sonur ykkar er skemmtileg týpa:) Gleðileg jól Helga mín:)

Íris Gísladóttir sagði...

Þetta eru allt mjög svo bráðnauðsynleg tæki sem eru á óskalista Baltasars :) Yndislegt bara, ég er reyndar spennt yfir klósettljósinu kannski það fái suma til að miða rétt ;)

Gleðileg jól og farsælt komandi ár og takk fyrir skemmtileg blogg á árinu sem er að líða

ellen aftur sagði...

bara ad tékka á nýrri faerslu.... Gledilegt nýtt ár!