Get svo svarið að fannst mér ég sjá Guðmund Inga gamla skólastjórann minn úr Heppuskóla út í búð rétt áðan. Algjör tvífari! Það var sem rollur færu um mig alla við flashbakkið! Það sem þessi stutti maður gat gert mann stressaðan á árum unglingaveikinnar. Hvernig er hægt að gleyma reglulegu undirborðplötu -spörkunum sem hann heiðraði okkur með þegar uppúr sauð.Og það glymur enn í eyrunum á mér "þú veraldar sauður og "ég gæti alveg eins talað við vegginn eins og að tala við ykkur". Já hann kunni lagið á okkur unglingunum. Sé hann fyrir mér ganga um í stutterma skyrtu og svörtu klossunum sínum. Afhverju gengur allir kennarar í þessum skóla í klossum eiginlega. Var það til að geta sparkað undir borðin hjá okkur með stæl!
Minn árgangur byrjaði í gaggó einu ári of snemma því það var ekki pláss fyrir okkur í barnaskólanum(eða voru þau bara búin að fá nóg af okkur þar). Stuttu eftir að ég byrjaði í Heppuskóla var kallað á okkur og sagt að nú væri messa. Ég fékk nett sjokk, hélt að við ættum að fara í guðsþjónustu með sálmum og alles. Nei aldeilis ekki, þetta var nafnið á einskonar samverustund með nemendum, kennurum og að sjálfsögðu Guðmundi Inga. Grunar að þetta hafi átt að vera munnlegt skólafréttabréf en oftar en ekki vorum við skömmuð í þessum messum. Eða man allavegna best eftir skömmunum. Eins og þegar Ægir kveikti í einhverjum hugmyndakassa, skildi aldrei afhverju það þurfti að skamma okkur öll fyrir það!
Ekki öfunda ég þessi kennaragrey að hafa þurft að kenna mínum bekk! Það fara trúlega rollur um hjá þeim þegar þeir hugsa um okkur. Ekki allir nemendur hafa reynt að troða enskukennaranum sínum út um gluggann!!
Fyndið að allt í einu gerist eitthvað sem fær mann til að hugsa um löngu gleymda atburði.
Later!











































